Mótmælum við bandarsíska sendiráðið hér á landi.

Ég vil hvetja þau mannréttindasamtök sem láta sig þjáningar Palestínumanna undir ísraelsku hernámi verða til að efna til mótmæla við bandaríska sendiráðið hér á landi. Það verður að sýna Bandaríkjamönnum að það er ekki bara fólk í Arabaheiminum sem fordæmir þessa svívirðilegu samþykkt TRumps heldur líka fólk á Vesturlöndum. Ég mun allavega mæta af boðað verður til slíkra mótmæla.


mbl.is Mótmælt þriðja daginn í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur við frelsisbaráttu Palestínumanna er ekki stuðningur við málstað hryðjuverkamanna.

Það að styðja frelisbaráttu Palestínumanna gegn hinu grimma herbámsvelsi Ísrael er ekki stuðningur við málstað hryðjuverkamanna. Og svo skautar Zeman framhjá því að grimmistu, miskunarlausustu og blóði drifnustu hryðjuverkasamtmökin á þessum slóðum er ísraelski herinn. 

Samkvæmt alþjóðasamþykktum þar með talið Genfar sáttmálanum hafa hernumdar þjóðir heimild til vopnaðrar andspyrnu gegn hernámi og er það flokkað sem sjálfsvörn. Palestínumenn hafa því heimild til vopnaðrar andspyrnu við hernám Ísraela. Það er engin munur á því þegar Pelestínumenn drapa ísraelskan ermann og því þegar anspyrnuhreyfingar í löndum sem Þjóðverjar harnámu í seinni heimstyrjöld drápu þýska hermenn.

Reynsla sögunnar er sú að þar sem er hernám þar er vopnuð andspyrna við hernámið. Og sagan segir okkur líka að hernámsveldið og stuðningsríki þeirra hafa flokkað andspyrnuna undir hryðjuverk og andspyrnuhgreyfingarnar sem hryðjuverkasamtök og er hernám Ísrala á Palestínum þar engin undantekning.

Jersúsalem er hluti af ólöglegu hernámi Ísraela og þeir eiga því ekki og hafa aldrei átt neitt tilkall til hennar og hafa því engan rétt á að skilgreina hana sem höfuðborg sína. Viðbrögð ESB ríkja hefur því verið í samræmi við alþjóðalög og einnig allt eðlilegt siðferði og getur því ekki kallast heigulsháttur eða stuðningur við málstað hryðjuverkamanna. Ef eitthvað er þá væri frekar hægt að væna ESB rífkin um heigulshátt fyrir að hafa ekki tekið eindreignari afstðu til fordæmingar á þessari samþykkt Trumps eða eindreignari afstöðu til fordæmingar á ólöglegur hernámi Ísraela. ESB ríkin ættu fyrir löngu að vera búin að setja viðskiptabann á Ísral til að þrýsta á þá að yfirgefa öll hernámssvæði sína og það hvern einasta millimeter af þeim. Öll rökin fyrir viðskiptabanni á Rússa vegna hernáms Krímskaga eiga líka við um hernám Ísraela og því fáránlegt aðs eetja viðskiptabann á Rússa en ekki Ísraela.


mbl.is Sakar ESB um heigulshátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. desember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband