Hvað ef Hitler hefði ákveðið að gera París að höfuðborg þriðja ríkisins_

Þessi viðurkenning Trump á hernunminni Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels er eins og ef Hitler hefði ákveðið að gera Paeís að höfuðborg þriðja ríkisins og forseti Bandaríkjanna  hefði ákveðið að viðurkenna það. 

Ísraelar eiga ekki og hafa aldrei átt neitt tilkall til Jerúsalem. Þetta er borg sem þeir hafa hernumið með ólögmætum hætti og það bæði austur og vesturhlutann. Vesturhlugann hernámu þeir árið 1948 og austurhlutann árið 1967. 


mbl.is Segir Jerúsalem höfuðborg Ísraels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þeim var nær, hafandi gert árás á hið nýstofnaða Ísrael.

Jerúsalem hefur aldrei verið höfuðborg neinna araba, aðeins Ísraelsmanna að fornu og nýju.

Jón Valur Jensson, 6.12.2017 kl. 18:54

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það voru hryðjuverkasveitir Síonista sem hófu þarð stríð löngu áður en Arabaríkin skárust í leikinn og höjfðu þegar hrakið hátt í hálfa milljón Palestinjmanna frá heimilum sínum í grimmilegum þjóðernishreinsunum sínum. Það voru því stofnendir Ísraels sem hófu það stríð rétt eins og Ísraelar voru árásaraðilinn í nánast öllum þeim stríðum sem þeir hafa háð við nágrannaþjóðir sínar og við Palestínjmenn.

Sigurður M Grétarsson, 6.12.2017 kl. 19:13

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér ferðu rangt með atburðarás og tímagreiningu. Ræddu málið við Snorra G. Bergsson, sérfróðan sagnfræðing.

Jón Valur Jensson, 6.12.2017 kl. 19:15

4 identicon

Guð, eins og hann er skrifaður er bara jólasveinasaga ... og ef fólk vill trúa því, að þeir séu "álfar" jólasveinsins, er þeim vel komið að trúa því.

Það eru bara enginn sannindi í þessari sögu ... og ef Íslendingar gera sér ekki grein fyrir því, er ekki "vitið" upp á marga fiska.

Öll ríki eru byggð á hernámi, frá upphafi ... konungar hernámu ríki, og gerðu ábúendur svæðanna nauðuga skattgreiðendur sem borguðu konungi fyrir að verða ekki rændir ella. Að Ísrael geri þetta, er ekkert öðruvísi en Bandaríkin sem hafa frumbyggja þess lands á "verndarsvæðum".  Ekki göngum við út á götur, og köstum eggjum í Sendiráð Bandaríkjanna, og eigum því ekki heldur að gera slíkt gegn Ísrael.

Kreppuannáll (IP-tala skráð) 6.12.2017 kl. 19:16

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

SMG

Þú bregst okkur aldrei í bogalist þinni, en ær þínar og kýr eru og hafa verið að þú getur ekki lesið þér til gagns, ferð rangt með sagnfræðilegar staðreyndir, reyndar skáldar þú þinn eigin sannleik eftir því sem hentar þér og meðbræðrum þínum í vitleysunni.

Hér tekur þó steininn úr, þú sannar okkur nú að auk stórgötóttrar sagnfræðikunnáttu þinnar þá kanntu lítt eða líklega ekkert í alþjóðalögum.

Sem betur fer sjá flestir í gegn um þessa annmarka þína og fáir leggja á þá nokkurn trúnað, enda falsfréttir svo maður noti nú tískuorðið mikla um vora daga.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.12.2017 kl. 19:38

6 identicon

Jerúsalem hefur enga þýðingu fyrir múslima, hvorki sögulega, trúarlega né menningarlega. Þeir vilja borgina einfaldlega til að meina gyðingum aðgang að sínum sögu-, menningar-, og trúararfi.

Jerúsalem er höfuðborg gyðinga, var, er og verður, hvað sem litlum nýfasista á Íslandi finnst um það

Hilmar (IP-tala skráð) 6.12.2017 kl. 20:13

7 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jón Valur og Predikari. Sögufalsanir Ísraela og stuðningsmanna þeirra eru ekki sagnfræðilegar staðreyndir og því er maður ekki að fara rangt með sagnfræðilegar staðreyndir þegar maður segir hlutina eis og þeir voru. Staðreyndin er sú að hryðjuverkasveitir Síonista það er stofnenda Ísraelsríkis réðust á nánast vopnlaua Palestínumenn og hröktu yfir 700 þúsund af þeim af heimilum sínum og eyðilögðu síðan í flestum tilfellum þorp þeirra og bæi til að byggja sín eigin þorp og bæi. Þetta voru grimmilegar þjóðernishreinsanir. Þeir Palestínumenn sem ekki flúðu morðsveitir Síonista voru í felstum tilfellum færðit til innan landsins. Samyrkjubú Ísraela eru í flestum tilfellum land sem rænt var af Palestínumönnum. Það voru því hryðjuverkasveitir Síonista sem hófu þetta stríð en ekki Arabaríkin enda hafði stríðið með miklum þjóðernishreinsunum þegar staðið yfir í þó nokkurn tíma þegar svo var komi.

Krappuannáll. Bandaríkin hafa ekki aðra þjóð undir hernámi eins og er og þeir eru ekki eins og er að standa fyrir þjóðerinishreinsunum hernuminnar þjóðar til að byggja landaránsbyggðir þó þeir hafi vissulega gert það á sínum tíma. Þeir eru heldur ekki að fremja reglulega fjöldamorð á óbreyttum borgurum meðal íbúa hernálssvæða sinna né að halda hátt í 2 milljónum manna í raun í gíslingu á stærsta opnu fangelsi heimsins ef frá er talin Norður Kórea. En það er full ástæða núna til að standa fyrri mótmælum við bandaríska sendiráðið og kasta eggjum í það vegna þessarar svívirðilegu ákvörðunar forseta Bandaríkjanna að viðurkenna það landrán sem fellst í innlumun Jerúsalem í Ísraelsríki.

Sigurður M Grétarsson, 7.12.2017 kl. 10:04

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú talar fyrir þinn smekk, Sigurður Magnús. En það er ekkert "svívirðilegt" við það að forseti þjóðríkis taki ákvörðun sem er í fullu samræmi við ákvörðun þjóðþingsins 1995.

Og hryðjuverkasveitir Zíonista höfðu engan mannskap í það 1948 að ráðast á 700 þúsund Palestínumenn og hrekja þá af heimilum sínum. Gleymdu ekki arabískum útvarpssendingum óvina Ísraels þá, sem hvöttu arabana þar til flótta; þeir hafa ekki vilja skjóta sína eigin menn í innrásinni í Ísrael!

Vertu svo sæll og blessaður.

Jón Valur Jensson, 7.12.2017 kl. 10:46

9 Smámynd: FORNLEIFUR

"Þessi viðurkenning Trump á hernunminni Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels er eins og ef Hitler hefði ákveðið að gera Paeís að höfuðborg þriðja ríkisins og forseti Bandaríkjanna  hefði ákveðið að viðurkenna það." 

Mikið áttu nú erfitt með að tjá þig Sigurður M. Grétarsson. Ertu hér að segja að Trump hafi ákveðið að viðurkenna París sem höfuðborg Þriðja ríkisins? Annað verður ekki lesið út úr þessu moði.

Og þú varst ekki einu sinni í vinnunni þegar þú skrifaðir þetta bölvaða þvaður þitt. ABC hér í ahugasemdarglugganum gæti hafa hjálpað þér.

FORNLEIFUR, 7.12.2017 kl. 12:38

10 Smámynd: Mofi

Hérna er ágæt samantekt á þessu máli frá sjónarhóli gyðings: https://www.youtube.com/watch?v=jsGK1I90x-c

Sumir auðvitað hata gyðinga eins og síðuhaldari hérna en sem betur fer eru ekki allir þannig.

Mofi, 7.12.2017 kl. 13:23

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ef þeir ættu raunverulega löglegt tilkall til þessarrar borgar þyrftu þeir ekki viðurkenningu annarra ríkja til að gera hana að höfuðborg sinni. Alveg eins og Ísland þyrfti ekki að leita viðurkenningar annarra ríkja til að gera Árborg að höfuðborg landsins ef það væri ætlunin, heldur væri einfaldlega nóg að samþykkja lög um það á Alþingi Íslendinga. Það er nefninlega hluti af sjálfsákvörðunarrétti fullvalda ríkja að ráða sínum eigin málum að þessu leyti en sá réttur nær aftur á móti ekki út fyrir lögleg mörk yfirráðasvæðis þeirra. Ísland gæti til dæmis ekki gert Þórshöfn að höfuðborg sinni án viðurkenningar annarra ríkja á yfirráðum Íslands yfir Færeyjum.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.12.2017 kl. 14:28

12 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Jón Valur


Það væri mjög And- Gyðingalegt af mér að sleppa að minnast á öll þau afrek er þetta Zíonista- Rasista-Terrorista-ríki Ísrael hefur staðið fyrir með öllum þessum hryðjuverkum löngu fyrir stofnun Zíonista Rasista Ísraels 1948. Þetta er örugglega eina ríkið í heiminum sem að fæddist með svona hryðjuverkum og djöfulsskap hryðjuverkahópanna Stern, Irgun og Haganah, er voru í því að drepa og sprengja Palestínumenn upp í tætlur löngu fyrir stofnun ríkisins 1948 (A Synopsis of the Israel/Palestine Conflict). Það væri auk þess mjög And- Gyðingalegt af mér að reyna segja að Zíonistar hafi verið friðarsinnar, eða eins og allt þetta líka litla, litla, nice, nice  ÓmegaTV prump lið reynir alltaf að koma inn.

Zíonistar hófu sexdaga stríðið með djöfulgangi og látum með ráðast á Egypska flugvelli og svo á aðra nágranna sína (Six-Day War began on June 5,1967, when Israel launched surprise bombing raids against Egyptian air-fields.), og Zíonistar hafa verið tregir til þess gefa eitthvað landsvæði eftir er þeir hafa hernumið algjörlega gegn alþjóðalögum. Zíonistar eða Ísraelsmenn hafa hafið hvert stríðið á fætur öðru gegn Líbanon 1982-1985 og 2006, svo og gegn Sýrlandi.

Að reyna segja að Guð sé leiða þetta fólk (eða Zíonista) er ekkert annað en argasta lygi gagnvart Guði og hans vilja. Þegar að Jesús Kristur sagði: "Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa.", þá átti hann örugglega ekki við ALLA ÞESSA Zíonista her- og landnema, þú?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 7.12.2017 kl. 14:30

13 Smámynd: Mofi

Guðmundur, Ísland viðurkenndi sjálfsstæði Litháens og við erum vanalega stollt af því að hafa gert það. Hérna er dæmi þar sem Jerúsalem er búin að vera höfuðborg gyðinga í þrjú þúsund ár, hvort sem var búið að hertaka hana af þeim eða leggja í rúst. Öllum væri alveg sama um Jerúsalem ef það væri bara ekki fyrir að hún er mikilvæg gyðingum. Sannleikurinn er sá að afstaða fólks í þessu máli sýnir hvort það eru rasistar eða ekki, hvort það hatar gyðinga eða ekki.

Mofi, 7.12.2017 kl. 14:34

14 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sigurður

Eins og þú veist þá vill Trump með þessu gera algjörlega útaf við tveggja ríkjalausn, en hérna Ómega- liðið, Predikarinn og fleiri hérna vilja að spádómarnir rætist, svo og ætla sjá til þess að spádómarnir rætist algjörleg. 


"Ég veit hvernig þú ert hrakyrtur af þeim, sem segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur samkunda Satans."(Op 2:9)

"Ég skal láta nokkra af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, - ég skal láta þá koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita, að ég elska þig." (Op 3:9)

"Og lík þeirra munu liggja á strætum borgarinnar miklu, sem andlega heitir Sódóma [Jerúsalem] og Egyptaland, þar sem og Drottinn þeirra var krossfestur." (Op 11:8)

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 7.12.2017 kl. 15:00

15 identicon

Sæll Sigurður.

Hitler hefði ekki gert París að höfuðborg frekar
en Napólen gerði Berlín að höfuðborg 1806 þá
hann hafði á braut með sér hestana góðu þá
er pýtt höfðu hlið þessarar borgar. (Brandenborgarhliðið)

Hvað er svona flókið við þetta?

Ísrael er sjálfstætt fulvalda ríki.


Við því er að búast þó ekki væri nema tæknileg
útfærsla löggerninga að ríkið hafi helstu sendiráð
þar sem það kýs helst og án tillits til trúarhópa.

Þetta er embættisfærsla sem hefur alls ekkert með
trúarhópa að gera og vonum seinna að það yrði
að veruleika.

Húsari. (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 16:53

16 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það þarf að horfa til upphafsins til þess að skilja hvað Ísrael meinar.  Allt þetta svæði unnu bretar þegar þeir felldu Ottomanveldið í lok fyrri heimstyrjaldar. Svo tóku sigurvegararnir (bretarnir) upp blýantinn og reglustrikuna og úthlutuðu þar með þessum þetta og hinum hitt án tillits til þjóðflokkanna.  Landi Kúrda var t.d. þrískipt í leiðinni á milli Tyrklands, Írans og Írak. Arabar fengu þó sína Jórdaníu í einu lagi.

Kolbrún Hilmars, 7.12.2017 kl. 17:42

17 identicon

"Īsrael hefur verið eytt og er ekki lengur til".

Enda þótt fréttir af stórsigrum herja Egypta yfir Ísraelsmönnum í sex daga stríðinu hafi verið eitthvað ýktar, þá gengu þær þó ekki svo langt að lýst væri yfir að Ísrael væri ekki lengur til.

Engu að síður kemur þessi frétt frá Egyptalandi. Hún fannst höggvin í stein og er talin vera frá árinu 1208 f.kr!!!

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 18:12

18 identicon

    • Áletrunin hljóðar svo:"Ísrael hefur verið eytt og er ekki lengur til".

    Hörðue Þormar (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 18:18

    19 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Hörður Þormar

    Það vantar heimildir, tilvitnanir og/eða eitthvað meira frá þér. En þér að segja þá vitum við hver er og hefur verið að rústa og eyðileggja Palestínu, og skv. Zíonista MSNBC- sjónvarpsstöðinni. Nú og hvar hefur þú verið, Hörður Þormar? 
    KV.
       https://pbs.twimg.com/media/CRc0qz2UAAUyB0L.jpghttps://pbs.twimg.com/media/CRctK7vU8AIyPf1.jpg

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 7.12.2017 kl. 23:50

    20 identicon

    Þorsteinn.

    Heimildir mínar eru á YouTube. Þær eru í þætti á frönsk-þýsku sjónvarpsstöðinni, Arte, og nefnist á þýsku:"Biblische Detektivgeschichten".

    Með kveðju.

    Hörður Þormar (IP-tala skráð) 8.12.2017 kl. 12:33

    21 Smámynd: Mofi

    Menn reyna að mála þetta þannig að Ísrael er stórt grummt ríki sem er að stela hellings landi af fátæku fólki þegar staðreyndin er sú að Ísrael er örsmátt ríki, umkringt af rúmum miljarði araba sem líta á Ísrael sem óvin og stór hluti þeirra vilja útrýma Ísrael og öllum gyðingum. Að þeir skulu hafa náð að senda nokkra af sínum eigin og gefa þeim nafn og láta sem svo að þarna er lítill hópur sem Ísrael er að misþyrma er lygi sem aðeins fólk með greindarvísitölu við frostmark trúir. 

    Ísrael er eina landið þarna sem hefur lýðræði, trúfrelsi, jafnrétti kynjanna, samkynhneigðir fá að lifa í friði og allir sem búa þarna fá þessi réttindi en um 20% Ísraels eru arabar.

    Að taka afstöðu á móti Ísrael er að taka afstöðu á móti siðferði, réttlæti og náunga kærleika.

    Mofi, 8.12.2017 kl. 15:35

    22 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Mufi

    Þetta eru ekkert annað en lygar, því að í Ísrael þá er og hefur ekki verið lýðræði og trúfrelsi og/eða hvað þá að það séu þarna mannréttindi. Palestínufólk fær ekki að vera í friði undir þessum yfirráðum Zíonista Rasista Ísrael, þú???

    En það eruð þið stuðningsmenn fyrir Zíonista Rasista Ísrael hérna sem að hafa verið í því að styðja Zíonista í áframhaldandi her- og landnám á Veturbakkanum og í Austurhluta Jerúsalem gegn ykkar kristnu Palestínutrúbræðrum fyrir Stærra Zíonista Ísrael.

    Það eruð þið þessir líka stuðningsmenn fyrir Zíonista Rasista Ísrael sem að hafa stuðlað að því að hús og íbúðir kristna Palestínumann og annarra séu eyðilög og rústuð niður í þessu her- og landnám fyrir Stærra Zíonista Ísrael.

    Það eruð þið þessir Kristnu stuðningsmenn Zíonista Ísraels sem að hafa stuðlað að því að eyðileggja kristna trú í Palestínu með því að styðja allt þetta her- og landnám, nú og sjá hérna gögn frá Kristnum Palestínumönnum, þú ???

    Jerusalem Declaration on Christian Zionism

    "A moment of truth A word of faith, hope and love from the heart of Palestinian suffering"

    Nú og það eruð þið þessir líka kristnu stuðningsmenn fyrir Zíonista Ísrael sem að viljið sjá spádómanna rætast, svo og ætlar örugglega núna að sjá til þess að spádómarnir rætist fyrir  Stærra Zíonista Ísrael.

    "Ég veit hvernig þú ert hrakyrtur af þeim, sem segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur samkunda Satans."(Op 2:9)

    "Ég skal láta nokkra af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, - ég skal láta þá koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita, að ég elska þig." (Op 3:9)

    "Og lík þeirra munu liggja á strætum borgarinnar miklu, sem andlega heitir Sódóma [Jerúsalem] og Egyptaland, þar sem og Drottinn þeirra var krossfestur." (Op 11:8)

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 16:53

    23 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

    Jón Valur Jensson. Það að forsetinn hafi verið að fylgja eftir svívirðilegri samþykkt þingsins gerir verknaðinn ekkert minna svívirðilegan. 

    Hryðjuverkasveitir Síonista höfðu um 40.000 vel vopnum búna og vel þjálfaða menn sem réðust gegn nánast óvopnuðum óbreyttum borggurum og frömdu fjöldamorð á þeim og hótuðu þeim Aröbum sömu örlögum sem ekki hypjuðu sig. Niðurstaðan varð sú að yfir 700 þúsund Palestínumenn flýðu heimili sín og hafa ekki fengið að snúa þangað aftur.

    Sigurður M Grétarsson, 8.12.2017 kl. 17:39

    24 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

    Fornleifur. Allir með lágmarks lesskilning myndu sjá að ég var ekki að fullyrða að Trump hefði samþykkt París sem höfuðborg 3 ríkisins heldur að þetta væri sambærilegur verknaður og ef þáverandi forseti Bandaríkjanna hefði gert það hjefði Hitlar ákveðði að lýsa hana sem höfuðborg. Ég var með þessu að sýna hversu svívirðileg samþykkt þetta var.

    Sigurður M Grétarsson, 8.12.2017 kl. 17:43

    25 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

    Mofi. Það að vera á móti landráni Ísraela gerir mann ekki að hatursmanni gyðinga eða rasista. Ég hef ekki haldið því fram að Ísrael sé stórt land en það er öflugt herveldi sem hefur haldið Palestínumönnum umdir grimmilegu hernámi í 70 ár. Það er fyrst og fremst nágrannaríkjum Íxraels sem stendur ógn af þeim en ekki öfugt enda hafa Ísraelar verið árásaraðilinn í nánast öllum þeim stríðum sem þeir hafa háð við þau.

    Sigurður M Grétarsson, 8.12.2017 kl. 17:45

    26 Smámynd: Mofi

    Þorsteinn, takk fyrir að gefa mér meiri trúverðugleika. 

    Mofi, 8.12.2017 kl. 20:37

    27 Smámynd: Mofi

    Sigurður, tõk enginn þetta land með hervaldi áður en ísrael var stofnað?

    Mofi, 8.12.2017 kl. 20:39

    28 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Mofi

    Þú, Jón Valur og þessir svokölluðu kristnu stuðningsmenn fyrir Zíonista Ísrael eigið líklegast líka eftir að styðja Lögleysingjann (Moloch karlinn), svo og þegar að hann kemur og gengur inn í Musterið (skv. II Pétursbréfi 2:6-12), og allt fyrir ykkar Jarðneska Zíonista Ísrael, ekki satt?

    KV. 

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 21:18

    29 Smámynd: Mofi

    Nei, það er algjört bull í mínum augum.  Eina ástæðan fyrir því að ég styð ísrael er af því að ísrael aðhyllist lýðræði, trúfrelsi og mannréttindi; eitthvað sem er af mjög skornum skammti á þessu svæði

    Mofi, 8.12.2017 kl. 23:06

    30 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Mofi

    NEI, Ísrael aðhyllist EKKI lýðræði, trúfrelsi og mannréttindi.

    Myndaniðurstaða fyrir palestinian christians

    Tengd mynd

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 23:16

    31 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Myndaniðurstaða fyrir christian palestinians symbols

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 23:17

    32 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Image result for christians in Palestine

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 23:18

    33 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Image result for 35% of palestinians are christians

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 8.12.2017 kl. 23:21

    34 Smámynd: Mofi

    Ef þú ert geðveikur Þorsteinn þá að minnsta kosti getur þú verið nógu gáfaður til að reyna að fela það.

    Mofi, 8.12.2017 kl. 23:41

    35 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Mofi,

    Eftir að hafa skoðað þennan lygaáróður hjá þér á blogginu þínu fyrir jarðneska Zíonista Rasista Ísrael (svo og þessi lyga- og áróðursmyndbönd), þá mætti halda að þú værir geðveikur. En hjá þér, Jóni Val og þessum blindu sértúrar stuðningsmönnum fyrir Zíonista Rasista Ísrael, þá er það Zíonista Ísrael sem að skiptir meira máli, frekar en kristin trú. Nú og ykkur er nákvæmlega skítsama um alla Kristna Palestínumenn, Kristna Palestínusöfnuði og Kirkjur þarna í Palestínu. Ég er eiginlega á þeirri skoðun að þú og hann Jón Valur og félagar séuð alls ekki kristinnar trúar, og satt best að segja þá eigið þið heima í Zíonista Synagogu.

    KV.          

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 9.12.2017 kl. 07:56

    36 Smámynd: Mofi

    Bara að benda þér á að setja inn hrúgu af einhverjum myndum virkar eins og geðveiki. Venjulegt fólk kíkir ekki einu sinni á þessar myndir. Mér er auðvitað ekki sama um kristið fólk eða Palestínumenn, það myndi strax hjálpa að þeir kysu ekki yfir sig hryðjuverkasamtökin Hamas.

    Mofi, 9.12.2017 kl. 10:02

    37 identicon

    Þorsteinn,

    það er gaman að vita hvernig þín Jew hatur byrjað ? Hvað gerðu þeir að gera dig til að hata þá svo mikið?

    Merry (IP-tala skráð) 9.12.2017 kl. 23:01

    38 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Mofi,

    Ég held að þú (Mofi) og þessum sértúrar stuðningsmönnum fyrir Stærra Zíonista Ísrael sé öllum skítsama um alla kristna Palestínumenn, kristna Palestínusöfnuði og alla kristna trú í Palestínu. Nú og þið komið aldrei til með annað en gubba yfir allt og alla áfram þessum áróðri og stuðningi fyrir Stærra Zíonist Rasista Ísrael gegn allri kristinni trú þarna. En það er þessi stuðningur við hernámið fyrir Stærra Zíonista Ísrael sem er að drepa alla kristna trú í Palestínu. 
    Auk þess komið þið aldrei til með að heimsækja kristna Palestínumenn í flóttamannabúðum, því að hjá ykkur þá er það alltaf áfram, áfram og áfram eingöngu þessi stuðningur, áróður og allt fyrir Stærra Zíonista Rasista Ísrael. 
    Þið getið öskrað hryðjuverkasamtökin Hamas hvað eftir annað, en 
    talandi um hryðjuverkastarfsemi, þá munið þið styðja áfram ykkar gömlu Zíonista hryðjuverka- stjórnvöld Ísrael, er byrjuðu hryðjuverkastarfsemi löngu fyrir stofnun 1948, svo og hófu sex daga stríðið 1967, nú og síðan hvert stríðið á fætur öðru gegn Líbanon og Sýrlandi, eða allt fyrir Stærra Zíonista  Ísrael, ekki satt?  
       
    KV. 

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.12.2017 kl. 01:50

    39 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    Marry, 

    Ef þú ert svona ósammála, af hverju getur þú ekki reynt að vera málefnaleg og komið með eitthvað?

    Zíonistar svo og þeirra ráðherra hafa bent okkur á þessar vinsælu aðferðir með að nota Gyðingahaturs- kortið og Holocaust-kortið gegn allri gagnrýni, þú?

    Sjá hérna einnig myndband Playing The Anti-Semitic Card og Anti-Semitic & Holocaust Card     

    KV.
    Image result for Zionism is  anti semitic

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.12.2017 kl. 02:38

    40 Smámynd: Mofi

    Ég vil aðeins frið á þessu svæði á meðan þú og þínir vilja útrýma gyðingum.

    Mofi, 10.12.2017 kl. 12:32

    41 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

    NEI, Mofi þú ert alls EKKI á móti áframhaldandi her- og landnámi Zíonista, og þú kemur aldrei til með að andmæla þessu her- og landnámi Zíonista, eða hvað þá einu sinni Zíonista Ísrael. Nú og það er heldur ekki hægt að segja að þú sért friðarsinni með allar þessa lygar og áróður fyrir Stærra Zíonista Ísrael, þegar við vitum til þess að Zíonistar hafa drepið margfalt fleiri Palestínumenn og auk þess hernumið og eyðilagt yfir 40 þúsund íbúðir og hús, þú?   

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.12.2017 kl. 16:43

    42 Smámynd: Mofi

    Ertu svona herskár á móti því landi sem arabar hafa hernumið?

    Mofi, 10.12.2017 kl. 22:53

    43 Smámynd: Jón Valur Jensson

    Þetta "Stærra Zíonista Ísrael" er nú ekki ýkja stórt, Steini, það er ekki nema 20.770 ferkílómetrar eða um fimmtungur af stærð Íslands, kannski eins og Múlasýslurnar! Og er þetta ekki eitthvað um 1% til móts við allan múslimaheiminn? Og þótt Ísrael sé sterkt herveldi, eru ríkar ríkisstjórnir í sumum arabalöndum, og þær eiga stóran hluta ríkja í SÞ, svo stóran, að þau samtök eru jafnvel orðin svo meðvirk með múslimum, að land grimmilegra mannréttindabrota eins og Saudi-Arabía hefur fengið þar formennsku í sjálfri mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna!

    Eins er með allar þessar mörgu samþykktir (eða vítur!) SÞ á Ísrael, að þetta er náttúrlega ekki eðlilegt. Kíkið bara á Jemen til dæmis eða Pakistan til samanburðar. Hrópar einhver húrra hér fyrir ástandinu þar?

    Jón Valur Jensson, 11.12.2017 kl. 17:10

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband