Meðvituð fjöldamorð á almennum borgurum og starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna.

Enn einu sinni sprengir Ísraelsher skóla á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hýsa óbreytta borgara. Þeir hafa sprengt nokkra slíka skóla þrátt fyrir að hafa ítrekað verið gefin upp staðsetning þeirra ásamt upplýsingum um að þar hafa óbreyttir borgarar leitað skjóls. Ísraelar hafa réttlætt þessar árásir með því að skotið hafi verið á þá frá þessum stöðum. Þeir hafa hins vegar aldrei getað sýnt fram á slíkt frekar en að þeir hafi yfir höfuð getað sýnt fram á þá fullyrðingu sína að Hamas liðar skýli sér bak við óbreytta borgara. Hvorki Sameinuðu þjóðirnar né önnum hjálparsamtök sem hafa fólk á svæðinu taka undir þær fullyrðingar og því bendir flest til þess að þessar fullyrðingar Ísraela séu ekkert annað en haugalygi í flestum ef ekki öllum tilfellum.

Hér er því ekki um neitt annað að ræða en meðvituð fjöldamorð á almennum borgurum og starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna. Einnig hafa Ísraelar myrt fjölda starfsmanna annarra hjálparsamtaka.

Það sem er að gerast á Gasa er því einfaldlega meðvituð fjöldamorð á almennum borgurun ásamt starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna og ýmissa hjálparsamtaka sem hafa ekkert með sjálfsvörn að gera. 


mbl.is Sjö létust þegar Ísraelsher sprengdi skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Audvitad er hreint forkastanlegt ad skjota og sprengja upp skola og eg fordaemi thad kröftuglega. Slikt verdur örugglega rannsakad ad stridinu loknu hvad hvor adili hefur gerst sekur um. Israel sem og Hamas.

Thangad til er bezt ad gaeta orda sinna og ekki tala um haugalygi an thess ad vita med vissu. Tek nokkur daemi um ad Hamas hefur vissulega kaert sig kollotta um obreytta borgara.

Her segir bladakonan Aishi Zidan fra Helsingin Sanomat staersta dagbladinu i Finnlandi fra thvi sem hun sa og heyrdi.

Hun er aettud fra Libanon ef eg man rett.

http://legalinsurrection.com/2014/08/hamas-hides-in-under-and-around-gazas-main-hospital-and-the-media-covers-it-up-video/

Her er önnur grein ur Jerusalem Post um hvernig bladamönnum er hotad. Tharna er um ad raeda fjölmidlamenn vidsvegar ur heiminum.

http://www.jpost.com/Operation-Protective-Edge/Journalists-threatened-by-Hamas-for-reporting-use-of-human-shields-369619

Her er svo thridja greinin ther til frodleiks.

http://jamesdelingpole.com/2014/07/why-you-dont-see-hamas-firing-rockets-on-tv/

S.H. (IP-tala skráð) 5.8.2014 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband