Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut næst.

Þetta er glæsilegt og þarft framtak. Næst þarf að taka til hendinni á Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut og vera með slíkar forgangsakreinar á leiðinni milli Reykjavíkur og Hafnafjarðar þar, sem umferðateppur myndast á annatíma. Reyndar þarf fyrst að taka upp beinar strætóleiðir milli Reykjavíkur og Hafnafjarðar eftir Reykjanesbraut til að almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu virki almennilega og síðan að sjálfsögðu að hafa forgangsakreinar fyrir þá vagna, sem þar fara um.

 

Síðan þarf að sjálfsögðu annað hvort að heimila hjólreiðar á þessum forgangsakreinum eða byggja hjólavegi samhliða þessum stofnbrautum. Með góðum hjólaleiðum og forgangsakreinum fyrir strætó er hægt að laga samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með mun minni kostnaði bæði í peningum og mengun en með því að breikka umferðaæðar fyrir bíla.


mbl.is Gamli og nýi strætó á rauðum dregli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kári Harðarson

Augljóslega!

Hjólreiðar eru leyfðar á strætisvagnaleiðum hér í Frans

Kveðja, Kári

Kári Harðarson, 19.9.2008 kl. 13:39

2 identicon

Banna taxana á þessum akreinum

Óskar Geir (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband