Afleiðing málflutnings Trupms og Le Pen.

Nú hefur komið í ljós að það var öfgamaður undir árhifum frá málflutningi Trumps og Le Pen sem framdi þetta ódæði. Svona atburðir eru fyrirsjáanleg afleiðing mélflutnings þeirra og annarra þjóðernisöfgamanna. Þegar mmálflutniongur margra þeirra sem ástunda versta hatursáróðurinn gagnvart Múslimum er skoðaður og Múslimum skitp út fyrir Gyðinga þá gæti sá málflutningur verið klipptur út úr hatursorðræðu Nasista gagnvart Gyðingum í aðdraganda seinni heimstirjaldar. Og málflutningur þeirra er alveg jafn rangur og jafn fyrirlitlegur og málflutningur Nasistanna.

Það er þegar búið að brenna nokkrar moskur í Bandaríkjunum þó þau ódæði veki ekki eins mikla athygli eins og hryðjuverk með mannfalli.

Ef ekki verður gripið í taumana gagnvart þessum hatursáróðri og uppgangur þjóðeremnispopúlistaflokka heldur áfram er aðeins spurning um hvenær en ekki hvort við sjáum næstu "kristalnótt" á Vesturlöndum en bara með nýjum fórnarlömbum.

Það er af þessum sökum sem það þarf að taka hart á hatursorðræðu og það á ekkeert skilt við aðför að tjáningafrelsi. Hatorsorðræða er andlegt ofbeldi sem þarf að taka á eins og hverju ðru ofbeldi.

 


mbl.is Sakar Fox News um lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Við höfum dæmi hér heima: Forystumanna múslima á Íslandi líkt við svín sem þurfi að aflífa.

Ekki nýtt orðfæri. Hitler talaði um Gyðinga eins og rottur sem þyrfti að útrýma. 

Ómar Ragnarsson, 1.2.2017 kl. 15:38

2 Smámynd: Hörður Þormar

Ég er að velta því fyrir mér hvort löggan hafi farið úr skónum þegar hún fór inn í moskuna:Razzien gegen hessische Islamistenszene

Hörður Þormar, 1.2.2017 kl. 23:07

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, þetta var mjög ljótt hryðjuverk öfgamannsins í Kanada. Þó er líklega rangt að fullyrða, að hann hafi gert þetta "undir áhrifum frá Trump og Le Pen," þótt vitað sé, að hann dáði þau. En ekki hef ég séð þau hvetja til neinna hryðjuverka!

Síðuhöfundur hér hefur nú stundum talað illa til Gyðinga.

En Ómar, gleymdu ekki þessu:

1. Lenín talaði líka um andstæðinga sína sem pöddur og sníkjudýr.

2. Forystumaður (imam) múslima í Skógarhlíð sagði opinberlega að samkynhneigðir rændu börnum.

Jón Valur Jensson, 2.2.2017 kl. 02:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband