Segir meira um Íslendinga er Islam.

Ef svipuð skoðaakönnun hefði verið gerð í Þýskalandi á fjórða áratug síðustu aldar varðandi heimild gyðinga til að reisa sín bænahús hefði mátt búast við svipaðri niðurstöðu. Sú niðurstaða hefði sagt meira um Þjóðverja en um Gyðingatrú.

Það sama má segja um niðurstöðu þessarar skoðanakönnunar. Hún segir meira um Íslendinga en Islam.

Sá hatursáróður sem nú fer um Evrópu er stórhættulegur og reynslan frá fyrri hluta síðustu aldrar ætti að sýna hverjar afleiðingarnar geta orðið af slíku. 

 


mbl.is 42,3% andvíg byggingu mosku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður tel ég þig á algjörum villu götum með þessa samlíkingu.

Töku dæmi af ungling sem var plataður í Islam vitleysuna..:

"Fouad hætti í vinn­unni og fór til Sýr­lands í apríl. Þar fann hann Noru og fékk að hitta hana í hálf­tíma ásamt yf­ir­manni henn­ar, Omar Omsen, sem er fransk­ur rík­is­borg­ari frá Senegal. „Hún var í slæmu ástandi, horuð, and­lit henn­ar bólgið og gult,“ seg­ir Fouad í viðtali vð AFP frétta­stof­una.

Hon­um tókst ekki að sann­færa Omsen um að leyfa henni að fara heim. Áður hafði Fouad rætt við syst­ur sína í síma þar sem henni tókst að segja hon­um að hún vildi fara heim. „Ég er hér meðal hræsn­ara og aum­ingja sem hrella Sýr­lend­inga,“ sagði Nora í sím­an­um er hún ræddi við bróður sinn.

Fyr­ir nokkr­um dög­um heyrði Fouda í Noru og þar sakaði hún fjöl­skyldu þeirra um að hafa yf­ir­gefið hana. Nora var há­grát­andi þegar systkin­in ræddu síðast sam­an. 

Að sögn lög­manns fjöl­skyld­unn­ar, Guy Gu­enoun, er Nora í raun í haldi Ríki íslam og hann ótt­ast að Nora og fleiri ung­ar stúlk­ur verði notaðar sem skipti­mynt. Það er, þær eru hrein­ar meyj­ar sem liðsmönn­um sam­tak­anna hef­ur verið heitið að þeir fái til af­nota."

Þetta er eitthvað sem þú hefur áhuga á er ert tilbúin að styðja.

Já, það er gott að búa að Íslandi og vitandi af fóliki sem tilbúið

er að styðja þessu ömurlegu trúarbrögð sem Islam er.

Ekkert á Íslandi samlagast þessari trú sem Islam er.

Hér yrði ekkert kvenfrelsi. Samkynhneigðir yrðu réttdræpir.

Dætur okkar yrðu gefnar til þeirra sem mest réðu og

þú yrðir tekin af lífi ef þér dytti í hug að hafna því.

Sýnir best munini á Íslendingum og Islam,  að þetta er eitthvað

sem við viljum ekki sjá né fá.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 9.10.2014 kl. 00:12

2 identicon

Einmitt. Þetta er bara samskonar pakk og segir "helvítis Ísraelar" og slíkt og alhæfir þannig um 1/3 gyðinga, eða nákvæmlega sama hlutfall og Hitler drap. Flestir gyðingar í dag, yfir 60% eru reyndar blandaðir gyðingum sem voru hraktir burt frá löndum Araba vegna stríðsins við Ísraels og hefðu hvorki fengið hæli í Bandaríkjunum né Evrópu og gátu ekkert annað farið. Ástæðan er að gyðingar af þessum uppruna eru mikið duglegri að eignast börn en allir aðrir gyðingar og eru líka fúsir og duglegir að blandast öðrum. Hlutfall þeirra sem eru bara afkomendur Evrópskra gyðinga nær ekki lengur 40%. Ekki það skipti neinu máli, en segir sitt um pakkið sem hrópar gífuryrði um "Ísrael" eins og það væri ein vera með eina hugsun og ætti að skammast sín eins og islamophobar og aðrir kynþáttahatarar.

Ragnar (IP-tala skráð) 9.10.2014 kl. 00:47

3 identicon

Flestir Ísraelar átti þetta að vera, ekki flestir gyðingar. Ísraelar eru bara 1 af hverjum 3 gyðingum. En það er ekkert bara og Ísraelahatari er gyðingahatari alveg eins og maður sem segðist hata þriðjung íbúa Afríku er kynþáttahatari. Breytir engu ef hann segir það eigi ekki við um íbúa Norður Afríku. Hann telst samt maður sem hatar Afríkakana ef hlutfallið er svona hátt.

Ragnar (IP-tala skráð) 9.10.2014 kl. 00:49

4 identicon

Tölurnar væru alveg eins annars staðar í Evrópu ef fólkið mætti ráða sem sýnir bara að innræti og eðli Evrópumannsins hefur ekkert breyst.

Ragnar (IP-tala skráð) 9.10.2014 kl. 00:51

5 identicon

Annars er það alltaf þannig að það hvað maður kýs að segja, hvernig hann kýs að segja það, hvað hann segir ekki og hvernig hann beitir þöggun, segir allt um hann sjálfan en ekkert um þá sem verða fyrir barðinu á hatri hans. Maður sem hatar grefur bara sjálfum sér gröf og kallar yfir sig vont karma og bölvanir.

Ragnar (IP-tala skráð) 9.10.2014 kl. 00:56

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Það styðja fæstir við öfga, Sigðurður K Hjaltested.

En ef við förum að fordæma heilu trúarbrögðin útfrá aðgerðum einstaklinga sem þau aðhyllast, þá eigum við að fordæma *öll* trúarbrögð.

Það eru eitthvað í kring um 1,6 MILJARÐUR manns sem aðhyllist íslam í heiminum. Aðeins mjög lítill hluti þessara einstaklinga aðhyllast þessa öfga sem þú talar um.

Þegar fólk hugsar um hryðjuverk, hugsar það um íslam. Raunin er hinsvegar sú, að á meðan það eru öfgar innan íslam líkt og annarsstaðar, þá eru hryðjuverkamenn sem aðhyllast íslam aðeins um einhver 6%.

Gyðingar hafa framið fleiri hryðjuverk en múslímar.

Kaþólikkar hafa framið fleiri hryðjuverk en múslímar.

En það er enginn hér núna, æpandi af hæstu hæðum að við þurfum að passa okkur á þessum 'helvítis' gyðingum eða kaþólikkum. Enginn búinn að setja þá alla undir sama hatt, þó að einhverjir nokkrir séu frekar klikk og öfgakenndir.

En það er allt í lagi að setja 1,6 MILJARÐ manns undir sama hatt, vegna þess að handfylli af einhverjum lúnatikkum eru þungamiðja hvað mesta hræðsluáróðurs, fyrr og síðar?

Alveg hreint ótrúlegt að fólk skuli halda það, að ef að múslímar fái að byggja sína mosku hér, þá verði allt í einu slík afturför, að konur fari að ganga í búrkum og missa öll félagsleg og lýðræðisleg rétindi, útburðir komast aftur í tísku, samkynhneigðir verða réttdræpir og brennisteinn fer að rigna af himnum ofan.

Þessi rökfærsla lyktar af svo mikilli forréttindafrekju að ég gæti ælt.

Ég veit ekki betur en að það séu þegar til hópar á Íslandi sem berjast alveg einstaklega hart fyrir því að kvenfrelsi verði skert, sem og réttindi samkynhneigðra. Samkvæmt þessari könnun er bara ansi stór hluti þjóðarinnar hlynntur þeim trúarbrögðum sem fyrrnefndir hópar sjálfir aðhyllast.

Það er nú bara svo langt síðan að Íslendingar skriðu út úr helvítis moldarkofunum. Væri nú alveg helvíti hart að við förum að skríða þangað aftur með svona afturhalds og forpoka hugsun að jafnréttis-útópían Ísland búi við svo svakalega lélegt jafnvægi, að það fari allt til fjandans ef að hópur fólks sem hefur verið hérna í ÁRATUGI fái að byggja sér fokkings bænahús.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.10.2014 kl. 01:03

7 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Það vantar inn í hjá mér, að þessi 6% sem ég minnist á, eru 6% allra hryðjuverkamanna yfir skráð hryðjuverk yfir einhverja áratugi, en ekki 6% allra múslíma.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.10.2014 kl. 01:05

8 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Sigurður K. Hjaltesteð. ISIS eru ekki dæmigerðir múslimar enda fordæma flestir múslimar þá. Hegðan þeirra kemur þessu máli þvi ekkert við og fáránlegt að væna menn um stuðning við þá fyrir það eitt að vera á móti því mannréttindabroti að mismuna fólki eftir trúarskoðunum hér á landi.

Félag múslima á Íslandi hefur veri til í hátt í tvo áratugi og er búið að vera með bænahús í atvinnuhúsnæði í 12 ár án þess að nokkuð slæmt hafi leitt af því. Hér er því aðeins um það að ræða að starfsemi sem er hér fyrir og hefur verið í á annan áratug komist í hentugra húsnæði.

Sigurður M Grétarsson, 9.10.2014 kl. 23:09

9 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ragnar. Hvað kemur málefni Ísraels þessu við? En bara til að það sé sagt þá á það ekkert skylt við gyðingahatur að styðja frelsisbaráttu Palestínumanna eða frodæma grimmdarverk Ísraela.

Sigurður M Grétarsson, 9.10.2014 kl. 23:11

10 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ingibjörg. Þetta er rétt hjá þér. Múslimar eru um 25% mannkyns en eru ábyrgi fyrir um 6% hryðjuverka frá árinu 1980.

Sigurður M Grétarsson, 9.10.2014 kl. 23:12

11 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sagt er að það seu 1.6 billjónir múslimar a þessari jarðkúlu, ef það er rétt og ef að aðeins 1% af múslimum eru ofstækis og hryðjuverkamenn þá er fjöldi þessara hryðjuverkamanna 16 miljonir.

Þetta er dágóður fjöldi sem drepur fólk i nafni allah og sem vera er að það er yfirleitt konur og börn sem lenda i klóm þessara riddara allah.

Þvílíkar hetjur.

Kveðja fra Houston

Jóhann Kristinsson, 10.10.2014 kl. 16:43

12 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Innan við 1%, Jóhann.

En samkvæmt þinni lógík, af því að það finnist öfgar innan íslam (líkt og allsstaðar), að þá er í lagi að setja hin 99% undir sama hatt?

Hvað með öfgakristni? Öfga-kaþólsku?

IRA, Ku Klux Klan, Army of God, Vatíkanið og batteríið í kringum það? Öfgakristnihópar eru ábyrgir fyrir fleiri dauðum, hryðjuverkum, morðum, nauðgunum og barnaníð en múslímar. Sömu sögu má segja um öfga-gyðinga.

Tala þessir hópar fyrir *alla* kristna?

Nei, svei mér þá ekki.

En innan við 1% af múslímum aðhyllast öfga (og þó einhver aðhyllist öfga er ekki samasem merki á að viðkomandi sé morðingi eða hryðjuverkamaður), þá tala þeir fyrir hin 99% ?

Það er bara aldrei nógu oft sagt, að það er viss hræsni í því að bera alltaf réttindi kvenna fyrir sig þegar íslam er mótmælt. Því Ísland, og vesturlöndin í heild, eru svo mikil útópía. Eða... þúst.. þannig.

Þegar ég var 13 ára, varð ég fyrir kynferðislegri árás af hendi eldri stráks. Hann reyndi að þröngva mér til samræðis.

Hann átti heima í Garðabænum. Hann var reyndar aðfluttur, en það er aukaatriði.

Mergur málsins er sá að það er deginum ljósara að allir Garðbæingar eru nauðgarar.

Ári síðar þegar ég var vistuð á ónefndu unglingaheimili reyndi fullorðinn starfsmaður þar að nýta sér tilfinningalegt uppnám mitt til að koma fram vilja sínum við mig.

Klárlega eru allir starfsmenn unglingaheimila níðingar.

Get haldið áfram. Löng saga stutt, samkvæmt reynslu minni og nokkurnveginn allra kvenna í heiminum, þá er kúgun og ofbeldi ekki bundið við 16 miljónir manns. Kúgun og ofbeldi er bundið við þá sem beita kúgun og ofbeldi, en slíkt fólk kemur úr öllum þjóðfélagsstéttum, starfsstéttum, aldri, öllum húðlitum, öllum trúarbrögðum.

Kúgun og ofbeldi á sér stað fyrir framan nefið á okkur á hverjum degi, og það er hreint út sagt móðgandi að gefa í skyn að það gerist ekki, með þessum rökum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 10.10.2014 kl. 19:58

13 identicon

Gyðingar eru um 0,2% mannkyns, múslimar eru fjórða hvert mannsbarn. Ef gyðingar hafa framið fleiri hryðjuverk en múslimar, sem er alls ekki rétt (og allar tölur utan Ísrael sýna þeir eru sekir um fæsta ofbeldisglæpi og ástríðuglæpi af öllum ethnískum hópum), þá væru þeir samansafn brjálæðinga. Gyðingar eru færri en Hollendingar. Að segja gyðingar hafi framið fleiri glæpi en múslimar, er eins og að segja að íbúar Súdan hafi framið fleiri glæpi en kristnir menn, eða íbúar Svíþjóðar fleiri en allir kaþólikkar. Þú átt bágt þykir mér.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 20:50

14 identicon

Með öðrum orðum, Ingibjörg, á alheimsvísu eru Gyðingar minnihlutahópur, minni en frekar lítið Evrópuland. Þeir eru bara taldir með "heimstrúarbrögðunum" vegna áhrifa á önnur trúarbrögð, sem þeir höfðu sér þvert um geð, því Gyðingdómur kennir að skipta sér ekki af lífsskoðun annarra, heldur láta þá vera og sýna umburðarlyndi og þeir líta á það sem glæp að reyna að telja annan mann á að skipta um trú eða aðhyllast ákveðna andlega lífsskoðun.

R (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 20:52

15 identicon

BTW, þá er meirihluti gyðinga, vel yfir 65%, ekki trúaðir yfir höfuð, og eiga enga Guðstrú. Zionisminn í grunninn tengist ekkert trú, og flestir gyðingar sem andmæla honum gera það af trúarlegum ástæðum, þeir sem aðhyllast hann gera það almennt aðeins af öryggisástæðum sem þeim eru innrættar (út af helförinni og nauðsyn á skýli fyrir árásum heimsins í þeirra huga). Aðrar hvatir koma þar ekki við sögu. Enginn trúarhópur giftist jafn mikið út fyrir sinn rann, þó eðlilega sé það minnst í Ísrael, en yfir 70% Evrópskra gyðinga og yfir 75% af þeim Bandarísku er giftur einhverjum sem er ekki gyðingur í dag. Það er í hæsta máta óeðlilegt og ekki til marks um mikinn "ethno centrisma" og ekki sambærilegt við neinn annan trúarhóp. Hindúar giftast enn almennt Hindúum og Kristnir kristnum etc.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 20:55

16 identicon

Fordæma grimmdarverk "Ísraela" er að setja alla sem þar búa, í fjölbreyttasta landi Miðausturlanda, stútfullu af Afríkönum sem þeir fluttu þarna inn í flugförmum en teljast víst gyðingar, og alls konar fólki með sama sið að litlu leyti en gjörólíka menningu afþví einn bjó í Lettlandi í 1000 ár og hinn Alsír og þar fram eftir götum. Það er auðvitað bara heimska. Skynsamt og vandað fólk fordæmir ríkisstjórnir, óvandað fólk með lélegt siðferði fordæmir fólk fyrir að fæðast einhvers staðar, og þó það fordæmi þá um leið 1/3 alla gyðinga heims, eða bara sama hlutfall og Hitler nýddist á á sínum tíma þegar hann murrkaði lífið úr 1/3, eða réttara sagt auðtrúa sauðirnir hans sem trúðu öllu sem þeir lásu í blöðunum og veigruðu ekki fyrir sér að fordæma heilan etnískan hóp á einu bretti (, þeir eins og þú létu sér nægja brot þeirra, þessa Evrópsku, en voru ekkert að agnúast út í arabíska eða afríska gyðinga sem þeim var slétt sama um, bara eins og margir vilja nú bara Ísraelum illt, en ekki Bandarísku gyðingunum sem segja brandara í sjónvarpinu og koma með sjarma sínum og persónutöfrum í veg fyrir aðra helför meir en nokkur annar, því lýðurinn er heimskur og vondur)

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 21:02

17 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nú er það einhver afsökun að bara af því aðrir eru öfgvamenn/konur, að þá er allt i lagi að riddara hetjur allah séu öfgvamenn/konur.

Móðir mín sgaði yfirleitt við mig "Þú þarft ekki að vera fífll, þó aðrir séu fífll," þegar ég bar því við að hinir strákarnir gera það líka.

Ég veit ekki til þess að ég hafi verið að afsaka ódæðisgerðir annara, en pistillinn er um islam og samkunduhús þeirra sem margir eru á móti og ég líka.

En sennilega villt þú hrósa þessum riddara hetjum allah sem níðast á konum og börnum og yfirleitt aflífa þau eftir að þessar riddara hetjur allah eru búnar að leika sér með fónalömbin.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 10.10.2014 kl. 21:06

18 identicon

Islamophobia er vissulega ógeðfelld en það er þó enn ógeðfelldara þegar menn eru að fá útrás fyrir rasískar hvatir sínar ýmis konar með að þykjast miklir vinir múslima. Ég þekki líka mann sem hatar og fyrirlítur svertingja, en tekur alltaf fram hann sé nú enginn rasisti og notar tækifærið að lofsyngja greind og atgerfi Japana. Það er bara nákvæmlega sama sort og sumir, já, við vitum öll hverjir og höfum hitt að minnsta kosti 2-3 slíka,...bara gamla útgáfan af henni. Ég þekki líka mann sem hatar og fyrirlítur alla kynþætti manna nema "Aría", og er auðvitað sérstaklega hræddur við Kínverja því þeir eru svo margir og valdamiklir, miklu fleiri en við og sækja í að verða meirihluti jarðarbúa, sem er bara besta mál. Sá talar oft mikið og fjálglega um Tíbet, en myndi fá taugaáfall ef barnið hans kæmi heim með asíska tengdadóttur, þó hún væri frá Tíbet.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 21:19

19 identicon

Hatrið finnur sér marga og mismunandi farvegi. Sem betur fer sjaldnast ofbeldi, en oftast velur það sér dulargerfi hræsninnar og helgislepju.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 21:20

20 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

http://www.washingtonsblog.com/2013/05/muslims-only-carried-out-2-5-percent-of-terrorist-attacks-on-u-s-soil-between-1970-and-2012.html

http://www.start.umd.edu/gtd/search/

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 10.10.2014 kl. 21:21

21 identicon

Nákvæmlega, sem þýðir ekki að Hollendingar hafi framið fleiri, hvað þá sá hópur sem hefur sláandi fæsta morðingja og nauðgara bæði í Bandaríkjunum og Evrópu af öllum etnískum hópum sem hafa verið mældir varðandi slíkt frá upphafi og eru ennþá færri en Hollendingar. Þú þarft ekki að fræða mig um ágæti múslima. Þá tel ég hluta minnar eigin fjölskyldu og ég er ekki trúaður maður.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 21:28

22 identicon

Það þarf með öðrum orðum miklar og stórkostlegar ranghugmyndir til að ímynda sér að hópur sem telur færri en 0,2% (gyðingar) fremji fleiri hryðjuverk sem slíkur en hópur sem telur 25%. Slíku hefur enginn haldið fram án þess að fá uppáskrift hjá geðlækni síðan Þriðja ríkið var og hét og dreifði slíkum lygum gegnum kvikmyndir og fjölmiðla sína og lýðurinn át upp eftir þeim.

R. (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 21:29

23 identicon

Íslam er andstyggileg hugmyndafræði sem á uppruna sinn í órum, græðgi og illsku rakins illmennis.

Íslam er ömurlegt költ sem fyrir meinbægni örlaganna varð að heimstrúarbrögðum.

Íslam boðar misrétti, yfirgang og ofbeldi og sýnir slíkt í verki hvar sem við verður komið.

Fólk á fullan rétt á að verja sig fyrir þessu ógeði.

Það er ógeðfellt og heimskulegt að líkja andúð og baráttuvilja fólks sem vill berjast gegn þessari helstefnu við raunir gyðinga á tímum þriðja ríkisins.

Gyðingarnir voru ofsóttir vegna þess að þeir voru taldir óhreinn og skaðlegur kynþáttur en ekki vegna skoðana sinna. Það kallast rasismi.

Andúð og baráttuvilji gegn ömurlegumm stefnum er aftur á móti ekki rasismi heldur eitthvað sem allir góðir menn ættu að bera í brjósti.

melcior (IP-tala skráð) 11.10.2014 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband